Veistu eitthvað um HIV eða alnæmi?

HIV-hópur AIESEC á Íslandi stendur fyrir fræðsluviku um HIV og
AIDS vikuna 23.-27. janúar. Fyrirlestrarnir munu taka á ýmsum
málefnum sem snerta veiruna og sjúkdóminn á einn eða annan hátt.

Dagskrá:
Mánudagur: 23. janúar í hádegishléi:
Starfaskipti sem skipta máli - HIV verkefni í Afríku
Lögberg, st. 101, Háskóla Íslands
Matsalur, Háskólanum í Reykjavík
Kennaraháskóli Íslands


Þriðjudagur: 24. janúar kl. 12:20, Askja st. 132
Hvað er alnæmi? Hvað er hægt að gera?
Eyjólfur Þorkelsson læknanemi


Miðvikudagur 25. janúar kl. 12:20, Askja st. 132
Áhrif alnæmis á samfélagið
Sigurlaug Hauksdóttir, yfirfélagsráðgjafi sóttvarnasviðs landlæknisembættis


Fimmtudagur: 26. janúar kl. 12:20 Askja st. 132
Alnæmi í Afríku
Nína Helgadóttir, verkefnisstjóri alnæmisverkefni Rauða krossins


Föstudagur 27. janúar kl. 12:20 Askja st. 132
Lifað með HIV
Ingi Rafn Hauksson, formaður Alnæmissamtakanna

Alnæmisborðinn verður til sölu á fyrirlestrunum.
Léttar veitingar í boði Ó. Johnson & Kaaber og Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar.

HIV hópurinn |

Starfaskipti
Starfaskiptin miða að því að gefa nemendum kost á að starfa í öðru landi en í sínu heimalandi, kynnast þannig nýrri menningu og öðlast reynslu í starfi sem tengt er námi þeirra.
Umsækjendur verða að hafa lokið a.m.k 2 ára háskólanámi og hafa A í ensku.

Meðlimir AIESEC hér á landi og í landinu sem er farið til hjálpa til við að sjá um allan undirbúning, eins og að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi og sýna þér nýju heimkynin.
Í þróunarlöndum eru störf yfirleitt ekki launuð en í flestum tilfellum er lagt til húsnæði og farið í ferðir. Mjög ódýrt er að lifa í þróunarlöndum svo kostnaður fyrir þig er ekki mikill.
Þú getur ráðið hve lengi þú starfar erlendis (8-78 vikur) og hægt er að óskað eftir ákveðnum stað. Eftir því sem þú ert opnari fyrir fleiri stöðum og hefur tímann sveigjanlegri því meiri möguleikar eru á að finna frábært starf sem hentar þér.
Þú þarft að borga flugfar og samgöngur á áfangastað.

HIV hópurinn |

AIESEC hefur haft áhrif á líf ungs fólks í nær sex áratugi í gegnum starfaskipti sín og önnur metnaðarfull verkefni. Eitt þessara verkefna er HIV-verkefnið sem miðar að því að virkja Ísland í málefnum tengdum HIV/AIDS sjúkdómnum bæði hérlendis og erlendis. Verkefnið er hannað af ungu fólki fyrir ungt fólk.

HIV verkefni AIESEC býður þér upp á að:
*Vekja umræðu um málefnið og fræða ungt fólk á Íslandi og í viðkomandi landi um sjúkdóminn.
*Veita þér sem háskólanema eða nýútskrifuðum tækifæri til að vinna þróunarstörf og leggja þannig þitt af mörkum í baráttunni gegn HIV/AIDS.
*Kynnast annarri menningu og starfa í öðru landi. Læra af öðrum nýja hluti sem geta nýst bæði í leik og starfi þegar heim er komið.
*Finna að þú sért fær um að bæta heiminn.

HIV hópurinn |